Tingimused

1. GILDISSVIÐ
Þessir skilmálar gilda um sölu á vörum og þjónustu Davíð keypti ölið (DKÖ) ehf til viðskiptavina.


2. ALDURSTAKMARK & ÖNNUR SKILYRÐI
Viðskiptavinir þurfa að hafa náð 20 ára aldri til þess að geta keypt vörur á dko.is. Við afhendingu þarf móttakandi pöntunar að staðfesta aldur sinn með rafrænu auðkennisappi.


3. AFHENDING
Allar vörur sem Davíð keypti ölið ehf býður til sölu í vefverslun sinni eru á lager á Íslandi og eru afgreiddar úr vöruhúsinu einu sinni í viku. Sendingarkostnaður bætist við verð vöru í lok kaupferils og áður en greiðsla fer fram. Ef vara reynist ekki til þegar hún er pöntuð vegna rangrar skráningar í birgðahaldi þá munum við hafa samband við viðskiptavininn og bjóða aðra vöru í staðinn eða endurgreiðslu.


4. SKILARÉTTUR
Hægt er að skila allri vöru nema matvöru (matur, bjór og vín) innan 14 daga frá því viðskiptin fara fram. Vegna eðlis bjórs, víns og annarar matvöru sem DKÖ selur er ekki hægt að skila vörum af þessu tagi gegn nema samkvæmt sérstöku samkomulagi þegar um er að ræða kaup á miklu magni fyrir veislur og þess háttar.


5. VERÐ OG VERÐBREYTINGAR 
Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum með virðisaukaskatti, ýmist 11% eða 24%


6. PERSÓNUVERND
Sjá persónuverndarstefnu DKÖ hér.


7. GREIÐSLUMÖGULEIKAR
Hægt er að greiða með með öllum helstu greiðslukortum og Pei.


8. VARNARÞING
Rísi ágreiningur vegna þessara skilmála skal hann rekinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.


9. UPPLÝSINGAR
Davíð keypti ölið ehf.
Netfang: dko@dko.is
Kennitala: 511223-1560
Íslenskt virðisaukaskattsnúmer: 151432